Velkomin
28.04.2008 23:49:57 / svava

Afró og litla konan frá Orkuveitunni.

Ég má til með að segja ykkur hvað gerðist fyrir mig í dag. Ég er þekkt fyrir að vera smá seinheppin og var dagurinn í dag engin undantekning á því. Málið er að eftir vinnu dreif ég mig heim þar sem ég átti von á henni Emi minni. Ég reyndi að laga aðeins til því íbúðin var soldið sjúskuð eftir laugardags og sunnudags þynnku/leti. Það gekk allt vel og ákvað ég að pissa og skipta um föt áður en stelpan kæmi. Í þann mund þegar ég fer inn á klósetið heyri í dyrabjöllunni minni. Ég ákvað drífa það af og buzza Emi inn þar sem hún var klárlega mætt á svæðið (án þess að tjékka út um gluggan eins og ég er vön). Ég heyri fótatak og einhvern koma upp stigann þannig að ég hendist inn á klósetið og vippa mér úr buxunum. Ég ákvað að kalla til Emi og segja henni að ég væri inn á klóseti þegar ég heyri ókunnuga rödd segja "HALLÓ". Ég panica of course og sé það að ég hef engan tíma að skella mér aftur í buxurnar svo ég set handklæði utan um mig og fer vandræðaleg til dyra. Þar er kona (sem betur fer) frá Orkuveitunni að biðja um leyfi til að skoða mælana mína. Ég bið til guðs að þeir séu í kjallaranum svo ég gæti endað þessa vitleysu og vandræðalegu mómenti. Hún kíkir inn og sér að mælarnir eru í anddyrinu. Ég ætlaði mér að láta hana bara sjá alfarið um þetta mál og vinna vinnuna sína nema hvað að taflan er svona tvo metra frá gólfinu og orkukonan svona 1 og 50 á hæð. Ég þurfti því að stíga fram, úr svefnherberginu, vandræðaleg með blátt handklæði vafið um mig til að opna töfluna og sýna henni mælana. Hún sem betur fer hló bara að þessu og fannst þetta allt mjög skemmtilegt. 20 mín. seinna kemur Emi mín og segi ég henni þessa sögu og fannst henni þetta næstum jafnskemmtilegt og dvergnum frá Orkuveitunni sem er pottþétt að segja öllu samstarfsfólki sínu frá þessari skemmtilegu heimsókn og silly stelpunni sem á heima á Ránargötu 3. ÉG fór að pæla hvort þetta atvik tengist því að ég braut spegil um helgina eða bara hvort þetta sé ekki venjulegur dagur í lífi mínu??

 ALla vega annað í fréttum ég er komið með nýtt æði og það er AFRÓ og ég vildi ég gæti dansað afró alla daga þangað til ég detti niður dauð og gæti ekki meir. Mæli eindregið með þessari andlegu jafnt sem líkamlegu tjáningarfrelsi og hreyfingu!!!

» 9 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 22:41:16 / svava

Skírnarafmælisdagur!

Í dag hringdi móðir mín í mig og tilkynnti mér það að ég ætti 25 ára skírnarafmæli. Þetta fannst mér skemmtilegar fréttir. Hún hefur reyndar aldrei áður minnt mig á þetta afmæli og hef ég aldrei pælt í því hvenær og á hvaða degi ég var skírð. En ég var sem sagt skírð 9. apríl 1983 eða á afmælisdegi ömmu minnar sem var örugglega aðal ástæða þessa símtals frá móður minni. En í tilefni þessa dags bauð mútta mér út að borða og á leikhús. Eftir leikhús kíkti hún í heimsókn á Ránargötuna fékk sér bjór og kenndi mér Bang bang my baby shot me down og House of the rising sun á gítar. Ég get ekki annað sagt en að ég eigi skemmtilega mömmu. Eftir þessa heimsókn var gamanið ekki búið því að ég fékk skemmtilegt sms og síðan símtal frá föður mínum (sem minntist ekkert á skírnarafmælisdaginn minn) en bauð mér á sinfoníutónleika. Mér finnst allir ættu að halda upp á skírnarafmælisdaginn sinn, hann er fáránlega skemmtilegur!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 18:13:47 / svava

Heil og sæl yndislega fólk!

Laaaaangt er síðan ég bloggaði síðast og mikið hefur drifið á daga mína en ætla ég mér ekki að fara út í smáatriði hér.
Eitt sem stendur hvað síst upp úr er að Ljótan læddist aftan að mér einn morgununinn og hefur ekki farið enn þá. LJótan er skemmtilegt fyrirbrigði og óútreiknanlegt, þú veist aldrei hvenær ljótan bankar upp á nema helst á einmitt þessum árstíma. Ég er þó búin að bíða þolinmóð og njóta þess að vera með Ljótuna en nú mætti hún alveg fara segja hasta luego og adíós! Eitt af einkennum Ljótunnar er svakalega næpulitur sem á endanum verður blár, mikil bauga myndast undir augunum og glæra. Þaaaaar sem ég er að fara á árshátíð og 25 ára stórafmæli þessa helgi reyndi ég að gera eitthvað í málunum. Það voru mestu mistök sem ég hef gert lengi því að Ljótan lætur ekki segjast. Ég ákvað sem sagt að setja á mig létta blöndu af brunkukremi til að fara aftur að sjást en það heppnaðist ekki því hvítan var of mikil, ég náði nefnilega ekki að setja brunkukrem á bakið (eins og allir ættu að vita sem hafa prufað) þannig að það myndaðist feit lína og skil meðfram síðunni. Soldið eins og Homblest kex-ið! En ég panic-aði ekki því ég hef húmor fyrir þessum hlutum og misheppnum fegrunaraðgerðum og því er ég að blogga um þetta hér.
En annars gott fólk, bara allt gott að frétta, hlakka mega til þangað til sunna vorboði kemur og jarijarijaaaa.

En hafið það gott mi amores chicititas!

Sveif

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 13:31:13 / svava

Þrælgott? hvað er gott við þræl og að vera þræll ef þræl skyldi vera þræll, ég held ég sé á móti þessu orði.

 

 Gleðilegt nýtt ár elsku vinir!!!

Áramótaheit: Ekkert bull! Ég hef komist að því að þetta er þrælgott áramótaheit sem getur þýtt svo margt og hægt að nota við margvíslegar aðstæður. Þau voru nokkur áramótaheitin sem ég ræddi um við Tönju og verða ekki afhjúpuð hér en þau geta flokkast undir "Ekkert bull". Þannig að ég mæli tvímælalaust með engu bulli! (ætli þessi færsla sé bull?)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 16:19:36 / svava

Tæræræræræræææ...

Jæja elskurnar I'm leaving on an airplane don't know when I'll be back again.... from San Francisco.... ;) Hafið það gott elsku dúllurnar mínar, mi amores og munið að vera góð við mömmu ykkar!

 Kveðja,

 Svavelo


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 13:21:05 / svava

Tæræræræræææ

Djöfull er ég fegin að Eggert fór yfir ba-starðinn með blýanti en ekki rauðum penna!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 16:40:48 / svava

'Surely you can't be serious' 'Yes I am, and don't call me Shirley'

Ég er að spá í að skella mér til Kaliforníu. Fyrst verð ég að klára ba-starðinn. Ég fékk póst frá móður minni og lýsti hún draumalífi sínu þar útfrá. Hún sagði m.a. þetta 'LÍFIÐ BYRJAR EKKI FYRR EN MAÐUR HEFUR SÉÐ KALIFORNÍU'. Ég hef alltaf trúað móður minni þó svo að þau systkin séu harðlygin. Þetta er ekki beint hvítar lygar heldur 'skemmtilegar' lygar og enn í dag er ég haldin mörgum ranghugmyndum um lífið og tilveruna. Ég benti móður minni einhvern tíman á þetta vandamál og sagðist hún vera glíma við nákvæmlega það sama þar sem foreldrar hennar voru ekkert skárri. Þetta er víst arfleið sem ég mun kenna börnum systur minnar einhvern daginn. ;) En já I hope I will be leaving soon on an airplane and don't know when I'll be back again. þar sem ég get byrjað lífið, étið stórar samlokur og stækkað við hamborgararassinn minn....

 SveifonherwaytoUSA


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 14:22:27 / svava

Lu Queen

Í GÆR FÉKK ÉG KANA Á AÐRA

LJÚFUR SIGUR

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 14:05:17 / svava

Vélar og tæki, hver veit hvað þau eru að hugsa.

Heil og sæl fockers! Takk fyrir síðast, það var aldeilis tekið á því og held ég hafi slegið drykkjumet þessa helgi!!! Nú er það bara veiðiferð, lokaparty og eyjar og þá fer ég í meðferð. Uppáhaldslagið mitt þessa dagana er reyndar með Amy winehouse (held það sé skrifað svona) og er viðlagið einhvernvegin svona 'they trying to make go to rehab but I say NO NO NO' Mjög viðeigandi þessa dagana...
Ástæðan af hverju ég er að blogga er sú að ég hef ekki bloggað lengi og svo er ég líka að reyna að skrifa ba-starðinn sem gengur svona fáránlega vel. Ég hef samt verið að velta því fyrir mér að ég held að öll raf- og vélatæki séu lifandi. Alla vega í kringum mig. Þessi tæki og vélar í kringum mig hafa sjálfstæðan vilja, það er nokkuð ljóst. Bíllinn minn 'je' tekur upp á því að skrúfa niður rúður og opna og læsa sig sjálfur. Síminn minn er oft að blikka án þess að eitthvað er í gangi og hringir randomly í fólk. Msn-ið mitt ákvað þar sem ég er að skrifa ritgerð að banna mér inngang og hafna password-inu mínu þannig að ég kemst hvorki á msn eða inn á hotmail. Þetta er orðið nett dúbíus og held ég að annað hvort hafa tæki og vélar óbeit á mér eða sjálfstæðan vilja og ég er greinilega ekki húsbóndinn. Þetta er skrítið en það er ekkert sem ég get gert í því.

Hafið það gott mússíkrússídússí og verið góð við hvort annað og afa og ömmur ykkar...

Svavenraven


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 10:49:29 / svava

Hvernig var stuðmannalagið aftur, flott hár eitthvað.... á mjög vel við núna NOOOOOOOOOT

hey hey hvað er að frétta? ekki mikið! Ég fór á æfingu í gær, heavy gaman, fórum síðan í sund og elduðum saman, gömlu kempurnar! 
Um daginn fór ég loksins í klippingu! ég er nett fræg fyrir að fá hræðilegar klippingar en þessi er alveg fín held ég bara. Pabbi hins vegar fór alveg með það þegar ég BENTI honum á að ég hefði farið í klippingu, þá sagði hann ' já þetta er svona annar stíll!' Segðu bara þetta er fínt og skrökvaðu ef þér finnst þetta ekki fínt. Ekki segja 'þetta er annar stíll'!!!!!! Þetta var ráðlegging til allra stráka, ljúga, ljúga og ljúga... Eftir að ég hló mikið sagði hann til að reyna bjarga sér 'þú ert alltaf sæt sama hvernig klippingu þú er með' sem er nottla bara staðfesting á það að honum finnst hárið hræðilegt....
Annars segi ég bara fínt, Tanja kemur á sunnudaginn, enn einn föðurlandssvikarinn að snúa aftur heim sem er bara töff. 
ÉG hef voða lítið að segja núna og veit ekki alveg af hverju ég var að blogga, þetta er frekar ómerkilegur pistill en ó well. Hafið það gott dúllímússírússíkrúsíbollurnar mínar og pungar.

Sveif 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 13:25:34 / svava

me gusta los martes

Váááá hvað ég verð að blogga eitthvað nýtt! Ég elska samt þriðjudaga. Ok hvað er búið að gerast. Ég kláraði prófin, fór á feitt djamm, fór til Flórída og kom heim og djammaði meira. Núna er ég að reyna að byrja á ba-starðinum og mig grunar strax að þetta verður erfið meðganga.
Flórída var æði og gaman að sjá Tönju babe, hún er að rocka flugheiminum í Vero Beach eftir að hún hafði gert hið sama í Naples. Ég nenni ekki að koma með ítarlega ferðalýsingu enda eins og hún tanja sagði 'what happens in Florida stays in Florida'. Ég held að það sé ágæt regla. Annars hlakka ég bara til að allir föðurlandssvikararnir komi heim svo að við getum byrjað þetta sumar. Ég er búin að vera að passa Gústa með Sunnu í viku. Þetta er mesta ljón sem ég veit um samt æðislega sætur. Hann ræðst samt á tærnar á manni á næturna og þegar ég vakna með hann ofan á sænginni dettur mér ekki í hug að hreyfa mig og pirra hann. Hann gæti bitið mig.
Ég legg til að við förum að plana útilegu og hitum aðeins upp fyrir verslunarmannahelgina.!!! Annars bara verið góð hvort við annað og sérstaklega mömmu ykkar!

paz y amor mi bellisimas amoresitaschicititas

SbabaLo

 p.s. Takk enn og aftur elsku englabossapungurinn minn fyrir mig Tanjarínarassarúsína!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 11:11:34 / svava

ÉG ELSKA ÞRIÐJUDAGA

TOMORROW, TOMORROW, I LOVE'YA TOMORROW YOU'RE ONLY AAAAAAAAAAA DAAAAAAAAAAAAAAAAYYYYYYYYYYYYYYYY AAAAAAAAAAAAAAAWAAAAAAAAAAAAAAYYYYYYYYYYYYYY.........................................


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 10:01:07 / svava

ZZZZzzzzzzzZZZZzz

HELGIN ER SVO LENGI AÐ LÍÐA

HVERSU LENGI Á ÉG AÐ BÍÐA

FRAM Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLD

FRAM Á ÞRIÐJUDAGSKVÖÖÖÖÖÖÖÖLD

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 12:00:08 / svava

Pronto, venga, coma, toma, puta - orðin hans Diego og lífðið á Hlöðunni

Það eru margar sktrautlegar týpur hérna á hlöðunni. Skrautlegasta týpan er án efa Diego sem er fimmtugur spænskumælandi maður. Hann á það til að kalla alla strákana 'bróðir' og stelpurnar 'ljúfan'. Ásamt því talar hann einhverja skemmtilegustu spænsk-íslensku sem ég hef heyrt. Stundum fer Diego aðeins yfir strikið eins og með því að segja 'já lover get ég aðstoðað' eða spyrja hvað maður sé að fara gera um helgina og gefa manni eitthvað skrítið augnaráð. Þetta er allt afsakað þar sem hann er nottla latino-boy og það rennur heitt blóð um æðar hans. Um daginn var hann að reykja með Eyþóri úr sagnfræðinni og lýsti því yfir að hann ætti svo erfitt með að vinna hér á Hlöðunni þar sem hann sæi bara sætar stelpur. Hann greinilega ræður bara ekki við sig. Ég veit samt ekki hvort hann hafi farið yfir strikið í gær þegar hann þefaði af mér og kallaði mig Maríu þegar ég var að fá mér kaffibolla. Ég hló bara vandræðilega, sagði takk Gústaf og þar með afsakaði hann.... Alla vega viva Diego...

Hasta luego

Sbaba


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 18:43:06 / svava

Ég skal!

Heil og sæl!!!

Fór í fyrsta prófið í dag og gekk bara skítsæmilega...

Síminn er hættur ad hringja og mig grunar að vinir mínir hafa skilið við mig. Ég skil það svo sem því ég er ekkert skemmtileg þessa dagana. Símtölin hafa verið í þessum dúr:

Vinur: Nei blessuð Svava mín, hvað segiru gott?

ég: bara fínt takk

V: hvað er að frétta?

ég: mest lítið, bara að lesa

v: hvað ertu búin að vera gera

ég: lesa

V: ekkert í fréttum?

ég: nei

vinur: allt í lagi, ok vertu blessuð´

ég: bless

Ég er ekki að púlla 'ég er svo feit' týpuna á þetta með því að reyna að kvarta geðveikt og fá einhverja vorkun, frekar er ég að afsaka my boredom ;) 

En ég mun endurheimta vinina aftur 15. maí (sem er afmælisdagur móður minnar fyrir ykkur sem voruð að velta því fyrir ykkur) þannig að það er vonarglæta... síminn mun fara að hringja aftur !!!

peace out rúsímússí

Svava


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11